Að þessu sinni var Haustferðin farin 19. september 2026. Lagt var af stað frá Olís við Rauðavatn kl. 9:06. Sjö bílar voru mættir að þessu sinni.
Þaðan var haldið að Laugarvatni þar sem ekið var inn Laugardalinn að Miðdal og þaðan haldið upp Miðdalsfjall fram hjá Gullkistu og áð við Brúarárskörð. Þaðan var gegnið um svæðið, gilin skoðuð og hádegis nestið snætt.
Þá var haldið áfram upp undir Hlöðufell, en síðan beygt í vestur og ekið að Sæluríki þar sem farið var í kaffi hjá Jóa og frú. Þaðan var haldið áfram línuveginn og endað á Þingvöllum.
Veður var gott og félagsskapur af bestu gerð.





Myndir og texti: Davíð Garðarsson
