Sumarhátíð Íslandróver 10.-12. júlí 2026

Sumarhátíð Íslandróver 10.-12. júlí 2026

Islandrover-32

Að þessu sinni var sumarhátíðin haldin fyrir austan í Höfðavík við Lagarfljót. Veðurspáin lofaði góðu og rætt var um hitabylgju á austurlandi. Þeir fyrstu mættu á svæðið á fimmtudeginum og nutu veðurblíðunnar. Flestir komu svo á föstudeginum og komu sér fyrir í hinum ýmsu ferðahýsum eða tjöldum. Þátttakendur á mótinu voru 70-80 á 35 bílum.

Ströndin í Höfðavík skartaði einnig sínu fegursta

Tilhlökkunin leyndi sér ekki. Laugardagurinn rann upp og margir tóku daginn snemma enda stefnt á að lagt væri af staði í hina árlegu Land Rover ferð klukkan 10:04. Lagt var af stað stundvíslega og haldið inn með Lagarfljótinu og upp á Fljótsdalsheiði.

Þaðan var farinn slóði sem hreindýraskyttur nota til veiða og lá leiðin upp á Þrælaháls þar sem útsýni var sagt gott til allra átta.

Hins vegar varð raunin sú að á tímabili fór austfirska lognið svolítið hratt yfir sem olli nokkru sandfoki á svæðinu sem byrgði sýn að nokkru og stundum að mestu leyti.

Þegar komið var langaleiðina eftir slóðanum varð slóðinn vatnssósa á litlum kafla þar sem stórir steinar og moldakenndur jarðvegur fóru saman. Þetta reyndist farartálmi fyrir óbreyttu bílana og sukku þeir í bleytuna jafnvel þó þeir stæðu kyrrir.

Því var ákveðið að forðast að valda spjöllum á slóðanum og þeir bílar sem ekki voru komnir yfir haftið snéru við sömu leið til baka. Nokkrir bílar sem voru komnir yfir héldu þó áfram fyrirhugaðri leið. Þá var haldið til baka á tjaldsvæðið eftir ýmsum leiðum. Sumir komu við í Skriðuklustri meðan aðrir lengdu leiðina og fóru að Kárahnjúkum og niður í Jökuldal með viðkomu í Stuðlagili og þaðan til Egilsstaða og á tjaldsvæðið í Höfðavík.

Um kvöldið var sameiginlegt grill og Landaróverleikarnir voru haldnir þar sem m.a. var keppt í viftureima kasti og bremsudiska boccia.

Síðan var spjallað saman og notið samveru fram á nótt. Á sunnudeginum var formlegri dagskrá lokið og flestir bjuggu sig til heimferðar eða í önnur ævintýri á austurlandinu.

Texti: Árni Árnason Myndir: Árni Árnason og Dóra G Wild.

admin

admin

05/10/2026

Við erum hér:

Skráning í Íslandrover

Fylltu út formið hér að neðan. Við sendum svo greiðsluseðil í heimabanka.