Sumarhátíð Íslandrover klúbbsins verður að þessu sinni fyrir austan – í Höfðavík helgina 10.-12. júlí næstkomandi. Þar verður góður andi í góðum félagsskap, jeppaferðir og ævintýri, grillstemning og samvera, útivera og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Nánari dagskrá og frekari upplýsingar verða auglýstar síðar. Hlökkum til að sjá sem flesta.

