Skúradagur Íslandróver hjá Eðalbílum

Skúradagur Íslandróver hjá Eðalbílum

20260221_154824

Skúradagur fór fram með miklum glæsibrag þann 21. febrúar 2026 í húsnæði Eðalbíla að Funahöfða 15 í Reykjavík.

Þar voru mættir nokkrir eðal Land Rover og Range Rover bílar, allt frá mikið breyttum Roverum til klassískra bíla. Þessir einstöku Roverar vöktu óskipta athygli gesta, enda bæði vandaðir og fallegir bílar.

Sérstakur gestur mætti frá Svíþjóð – Niclas Andersson, stjórnarmaður í „Swedish Land Rover Club“.

Hann sýndi mikinn áhuga á bílunum og þeim sem hann spjallaði við. Þegar í stað mynduðust góð tengsl á milli Íslandróver og þessa sænska gests, sem vonir standa til að leiði til enn frekari samskipta í framtíðinni.

Almennt voru menn sammála um að dagurinn hefði tekist afar vel í alla staði.

Allir nutu þess að skoða og ræða um bíla og breytingar, og stemningin var einkar góð.

Grein og myndir: Árni Árnason

admin

admin

10/03/2026

Við erum hér:

Skráning í Íslandrover

Fylltu út formið hér að neðan. Við sendum svo greiðsluseðil í heimabanka.